Nútíminn
Við skrifum hlutlausar fréttir með ferskri nálgun.
- Website
- nutiminn.is · all feeds from this site
- Feed URL
https://www.nutiminn.is/feed/
Read it in your FeedListing reader
Or add to: Feedly Inoreader Raw feed
Latest posts
-
„Mér var ýtt út vegna skoðana minna“ – Helga Dögg segir frá erfiðum starfslokum í Síðuskóla
Helga Dögg Sverrisdóttir, fyrrverandi kennari við Síðuskóla á Akureyri, segir að opinber gagnrýni hennar á kynvitundarfræðslu í grunnskólum hafi orðið upphafið að langvarandi átökum við skólastjórnendur og samstarfsfólk. Hún lýsir félagslegri einangrun, breytingum á…
-
Ragnar Rögnvaldsson: Frasastjórnin
Ragnar Rögnvaldsson segist löngu hættur að ná utan um alla frasana sem koma frá ríkisstjórninni, allt frá verðmætasköpunarhausti og tekjuöflun til þess að „laga Ísland“. Hann vill heyra minna um hvað ríkisstjórnin ætlar að kalla hlutina og meira um hvað hún ætlar raunverulega að…
-
Tucker Carlson segir kjarnorkuárás á Íran mögulega innan nokkurra daga
Færsla bandaríska fjölmiðlamannsins Tuckers Carlson á X um mögulega kjarnorkuárás Bandaríkjanna á Íran dreifðist víða daginn fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum 3. nóvember. Samkvæmt tölum X þann 3. nóvember hafði færslan fengið 87,6 milljónir áhorfa, um 385 þúsund „læk“og um…
-
Fjölskylda með tvö börn fórst þegar þota hrapaði í Flórída – Heyrðu neyðarkallið
Fjölskylda með tvö ung börn var á meðal níu manna sem fórust þegar Learjet 60-þota hrapaði á fjölfarinn þjóðveg í Palm Beach-sýslu í Flórída á sunnudag. Á upptöku af samskiptum við flugumferðarstjórn heyrist kona í flugstjórnarklefanum hrópa: „Við munum hrapa til jarðar.“ Þotan…
-
Þrítugur knattspyrnumaður lést eftir harkalegan árekstur við markvörð – Sjáðu myndbandið
Spænski knattspyrnumaðurinn Jesús de Miguel, leikmaður Tenerife, lést í morgun, þrítugur að aldri, eftir að hafa fengið þungt högg á brjóstkassann í árekstri við markvörð í leik gegn FC Andorra í spænsku B-deildinni í gær. Atvikið varð þegar markvörður Andorra, Jesús Owono,…
-
Heiða Ósk segir lögreglu hafa beðið konu að fjarlægja færslu – lögreglan hafnar því
Kona varaði við manni í Facebook-hópnum Áfram stelpur, sem vildi senda henni myndir af fyrrverandi kærustu sinni, en tók færsluna síðar niður, segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, kölluð Heiða Ósk, stofnandi hópsins. Segir konuna hafa fengið símtal frá lögreglu Heiða Ósk…
-
Rússneska sendiráðið undrast samanburð á kjarnorkuvopnaummælum og endurbirtingu greinar Lavrovs
Ummæli Heimis Más Péturssonar um hermenn og kjarnorkuvopn og viðbrögð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi eru tilefni yfirlýsingar rússneska sendiráðsins í Reykjavík. Þar er ráðherrann gagnrýndur fyrir samanburð á ummælum Heimis Más og endurbirtingu…
-
Vill fangelsi í stað 200 þúsund króna sektar fyrir vændiskaup
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra mælir á Alþingi í dag fyrir frumvarpi sem afnemur sektir við vændiskaupum. Verði það að lögum verður fangelsi eina refsingin sem lögin gera ráð fyrir fyrir að kaupa vændi og hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni hækkar úr…
-
Samtökin ’78 kærðu ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn á skrifum Helgu Daggar
Samtökin ’78 hafa kært til ríkissaksóknara ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra um að hætta rannsókn á bloggskrifum Helgu Daggar Sverrisdóttur og bíður kæran afgreiðslu, samkvæmt gögnum sem Helga Dögg afhenti Fréttinni. Ákvörðun lögreglu er dagsett 10. september 2026 og…
-
Snorri Másson hjólar í Kristrúnu: „Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að í fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um skipulagða glæpastarfsemi, útlendingamál og fjármögnun löggæslu væri „teiknuð upp býsna dökk mynd“. Hún sagði ekki rétt að…
-
Þorgerður Katrín: Endurtíst á Lavrov „miklu alvarlegra“ en færsla Heimis Más
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að það væri „miklu alvarlegra“ að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hefði endurtíst færslu um Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, en að Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks…
-
Hafa áhyggjur af jafnréttisfræðslu stærðfræðikennara
Höfundar nýrrar ritrýndrar greinar í Netlu telja áhyggjuefni að jafnréttismenntun sé ekki í hávegum höfð í stærðfræðikennslu á unglingastigi og að kennara skorti fræðslu um tengsl kyns og menntunar. Þeir líta á vandann sem kerfislægan og rekja hann til ófullnægjandi fræðslu…
-
Rúður brotnar í nærri þrjátíu bílum á Seltjarnarnesi í nótt
Rúður voru brotnar í nærri þrjátíu kyrrstæðum bílum á Seltjarnarnesi í nótt. Bílarnir stóðu í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þau sem geta veitt upplýsingar um málið að hafa samband í síma 444 1000. Lögreglunni bárust…
-
Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar nær öllum ákæruliðum og segist sjálf hafa verið áreitt
Íris Helga Jónatansdóttir neitaði í dag nær öllum ákæruliðum þegar aðalmeðferð í máli hennar hófst í Héraðsdómi Reykjaness. Hún segist saklaus og að hún hafi sjálf verið áreitt, samkvæmt RÚV. Hún er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum…
-
Helgi Bjarnason: Pólitísk fréttastofa í gervi hlutleysis
Helgi Bjarnason skrifar: Ljóst má vera öllum þenkjandi mönnum að launaður erindreki stjórnarflokks á ekkert erindi í stjórn fjölmiðils sem á að vera pólitískt óháður. Þar er eðli máls samkvæmt augljós hagsmunaárekstur. Eða, ef við viljum tala hreina íslensku: Þetta er óboðlegt.…
-
Fjölskylda Henry Nowak segir lögregluna hafa villt um fyrir sér og ítrekað breytt frásögninni
Fjölskylda Henry Nowak lýsir nú í fyrsta sinn nóttinni þegar henni var tilkynnt um morðið á honum og áfallinu sem fylgdi því að sjá upptöku úr búkmyndavél lögreglunnar. Í viðtali við ITV segir fjölskyldan að hún hafi þurft að horfast í augu við tvö áföll: fyrst dauða Henrys og…
-
Faðir tilkynnti andlegt ofbeldi gegn syni sínum – Barnavernd neitaði að skoða málið
Faðir tilkynnti barnavernd um andlegt ofbeldi gegn syni sínum en barnavernd neitaði að hefja könnun vegna þess að forsjármál var í gangi. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála lét þá afgreiðslu standa. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að ákvörðun…
-
Breiðholtsmálið: Grunur um að hinir stungnu hafi reynt að kúga fé af manninum, herma heimildir Vísis
Til skoðunar er hvort mennirnir tveir sem urðu fyrir hnífsstungum í Breiðholti aðfaranótt sunnudags hafi reynt að kúga fé út úr manninum sem er grunaður um að hafa stungið þá, samkvæmt heimildum Vísis. Annar mannanna lést á slysadeild en hinn liggur enn á gjörgæsludeild…
-
Tveir handteknir vegna líkamsárása í Reykjavík í nótt
Tveir menn voru handteknir og vistaðir í fangaklefa vegna tveggja líkamsárása í Reykjavík í nótt. Önnur árásin var tilkynnt í hverfi 110 (Árbær) og hin í hverfi 111 (Breiðholt). Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir aðfaranótt mánudags. Einn var…
-
María Rut segir Miðflokkinn hafa ógnað öryggi sínu meira en múslimar
María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði á Samstöðinni á sunnudag að ákveðin stjórnmálaöfl hefðu ógnað öryggi hennar og vina hennar og tilverurétti transvina hennar mun meira en múslimar hefðu gert. Þegar hún var spurð hvort hún ætti við Miðflokkinn svaraði hún því…